Innlent

Á sokkunum að næsta bæ

Ökumaður sem grunaður er um ölvunarakstur velti bifreið sinni á Upphéraðsvegi nálægt Egilsstöðum um níuleytið í gærmorgun. Maðurinn rotaðist og meiddist á fæti, en hafðiekki önnur úrræði þegar hann rankaði við sér en að ganga á sokkaleistunum um þrjá til fjóra kílómetra að Hreiðarsstöðum þar sem hann fékk aðhlynningu. Maðurinn var svo fluttur á sjúkrahús á Egilsstöðum til rannsóknar, en að sögn lögreglu á Egilsstöðum leikur grunur á að maðurinn hafi haldið of snemma af stað eftir drykkju nóttina áður. Bifreiðin er talin ónýt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×