Sport

Baldvin áfram hjá Val

Baldvin Þorsteinsson handknattleiksmaður hefur ákveðið að vera áfram hjá Val. Baldur var í viðræðum við Hafnarfjarðarliðin FH og Hauka en hann hefur nú tekið þá ákvörðun að halda áfram með Völsurum. "Ég er búinn að fara á nokkra fundi með stjórn Vals og mér líst mjög vel á þeirra áform. Það eru komnir nýjir menn með ferskar hugmyndir sem ætla að styrkja liðið með allavega tveimur mjög sterkum leikmönnum. Ég var ekki alveg sáttur með stjórnina á síðasta tímabili en þetta lítur vel út núna. Mér hefur alltaf liðið vel hjá Val og verð því örugglega áfram." sagði Baldur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×