Innlent

Tilraun til líkamsárásar

Hæstiréttur dæmdi í gær mann í 10 mánaða fangelsi, en skilorðsbatt átta mánuði af refsivistinni í þrjú ár. Maðurinn var dæmdur fyrir "tilraun til líkamsárásar með hnífi" á veitingastað í Hafnarstræti í Reykjavík. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn í desember í ársfangelsi fyrir árásina, en frestaði níu mánuðum refsingarinnar gegn því að maðurinn héldi skilorð í tvö ár. Maðurinn þarf að greiða allan áfrýjunarkostnað vegna málsins, auk tveggja þriðju hluta sakarkostnaðar í héraði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×