Innlent

Árekstur við Hringbraut

Ökumaður og farþegi á bifhjóli slösuðust þegar bifhjólið og bifreið rákust saman á Hringbraut klukkan hálf átta í gærkvöldi. Þeir eru þó ekki alvarlega slasaðir. Bifreiðin, sem er kennslubifreið, skemmdist talsvert að sögn lögreglunnar og varð að fjarlægja hana með kranabíl. Ekki er vitað hvort nemandi var við akstur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×