Innlent

Harður árekstur jeppa og fólksbíls

Mjög harður árekstur varð í gærkvöldi á mótum Biskupstungnabrautar og Suðurlandsvegar þegar jeppi og fólksbíll skullu saman. Enginn slasaðist alvarlega en bílarnir skemmdust báðir mikið og voru þeir fluttir af vettvangi með kranabíl. Að sögn lögreglunnar á Selfossi gekk umferðin vel fyrir sig í þeirra umdæmi um hvítasunnuna, stöku ökumaður var tekinn fyrir hraðakstur en helgin var að mestu án óhappa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×