Innlent

Maður barinn með kylfu

Lögreglan á Ísafirði lagði hald á hafnaboltakylfu á Flateyri á aðfaranótt mánudags, en talið er að henni hafi verið beitt í slagsmálum fyrir utan veitingastað í bænum. Þar hafði nokkur hópur tekið þátt í slagsmálum sem upp komu, en enn liggja ekki fyrir kærur vegna atburðarins. Lögregla sagði manninn sem átti að hafa verið barinn með kylfunni ekki hafa virst mjög meiddan og sjálfan viljað koma sér til síns heima um nóttina, en ólætin hófust um klukkan hálf fjögur. Þá var einn tekinn fyrir ölvunarakstur á Ísafirði sömu nótt, en lögregla sagði helgina að öðru leyti hafa verið tíðindalitla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×