Innlent

Bílslys á Svínadal

Bíll fór útaf veginum á Svínadal um hálfníuleytið á föstudagskvöld. Lögreglan á Búðardal fékk tilkynningu um að í bílnum væru fjórir slasaðir og þar af eitt meðvitundarlaust barn. Sjúkrabílar og björgunarlið var sent á staðinn en sem betur fer slysið var ekki eins alvarlegt og leit út fyrir. Mæðgur voru fluttar á slysadeild í Reykjavík eftir slysið með áverka. Bíllinn fór út af veginum í lausamöl og í heljarstökk yfir 3 metra breiðan skurð 7 metra frá veginum og lenti á afturendanum og er gjörónýtur eftir. Mesta mildi þykir að ekki fór verr.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×