Innlent

Vélsleðamaður með opið fótbrot

Þyrla landhelgisgæslunnar sótti vélsleðamann með opið beinbrot á fæti inn að Hrauntindum í Rangárvallaafrétt um miðjan dag í gær og flutti á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Einnig voru kallaðar til björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli. Fyrsta hjálparbeiðni vegna slyssins barst um klukkan eitt, en beiðni um aðstoð þyrlunnar barst klukkan 14.16. Þyrlan var lent með manninn í Reykjavík klukkan 16.19. Að sögn lögreglu á Hvolsvelli hafði maðurinn ekið sleða sínum fram af snjóhengju og fótbrotnað við það.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×