Innlent

Í haldi grunaður um nauðgun

Karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um nauðgun á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í nótt.  Atburðurinn var tilkynntur til lögreglu um sexleytið í morgun en staðurinn var þá enn opinn og einhverjir gestir þar inni. Starfsmenn staðarins grunaði þá að eitthvað óeðlilegt væri á ferðinni á einu salerni staðarins. Hurðin var svo brotin upp meðan lögregla var á leiðinni og maðurinn tekinn höndum þegar hún kom á staðinn. Maðurinn var yfirheyrður nú síðdegis en það var ekki hægt fyrr vegna ölvunar hans. Konan, sem er á þrítugsaldri, er hins vegar á neyðarmótttöku fyrir fórnarlömb nauðgana í Reykjavík. Lögreglan í Keflavík segir málið rannsakað bæði vegna gruns um nauðgun og eins vegna mögulegrar misneytingar, þ.e. ef konan hefur verið sofandi eða of ölvuð til að gera sér grein fyrir atburðarásinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×