Innlent

Kærði nauðgun á skemmtistað

MYND/Vísir
Kona á þrítugsaldri kærði nauðgun til lögreglunnar í Keflavík í nótt. Konan sagði mann hafa nauðgað sér á salerni á skemmtistað. Maðurinn var handtekinn á staðnum og gistir nú fangageymslur lögreglunnar í Keflavík. Að öðru leyti var nóttin róleg á Suðurnesjum. Hópslagsmál brutust út fyrir utan skemmtistað á Flateyri í nótt og var lögreglan á Ísafirði kölluð á staðinn. Þar hafði maður verið sleginn í höfuðið með hafnaboltakylfu og blæddi úr sárinu. Maðurinn vildi þó ekki læknisaðstoð. Enginn var handtekinn vegna málsins en það er í rannsókn. Þá var einn ökumaður tekinn á Ísafirði í nótt, grunaður um ölvun. Nóttin var róleg í miðborg Reykjavíkur en á Akureyri var talsverður erill vegna drukkins fólks.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×