Innlent

Maður lést í átökum

Tuttugu og níu ára karlmaður lést eftir átök nokkurra manna í fjölbýlishúsi í Hjallahverfi í Kópavogi í gærkvöldi. Annar maður var fluttur á sjúkrahús þar sem hann þurfti að gangast undir aðgerð vegna áverka en hann mun ekki vera í lífshættu. Þrír menn voru handteknir á vettvangi en mennirnir, sem þekktust allir, eru af erlendu bergi brotnir og búsettir hér á landi. Fleira fólk var í íbúðinni þegar lögreglan kom á staðinn en talið er að eggvopn hafi verið notuð í átökunum. Yfirheyrslur standa nú yfir mönnunum en lögreglan í Kópavogi verst allra frekari frétta af málinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×