Innlent

Létust í umferðarslysi í Öxnadal

Konurnar sem létust í umferðarslysi í Öxnadal í gær hétu Halldóra Árnadóttir og Edda Sólrún Einarsdóttir. Halldóra var til heimilis að Kvistagerði 2 á Akureyri og lætur eftir sig eiginmann og fjóra uppkomna syni. Hún var farþegi í jeppabifreiðinni. Edda Sólrún var til heimilis að Baldursgötu 10 í Reykjanesbæ. Hún lætur eftir sig tvo uppkomna syni. Hún var ökumaður fólksbifreiðarinnar. Eiginmaður Halldóru, sem ók jeppanum, var fluttur mikið slasaður á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en hann er þó ekki talinn í lífshættu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×