Innlent

Þyrlan komin til Reykjavíkur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF, lenti nú klukkan hálffimm á Reykjavíkurflugvelli með veikan sjómann sem hún sótti í bát norður af Hornbjargi. Þyrlan var kölluð út á hádegi í dag og var maðurinn kominn um borð í hana rétt fyrir klukkann hálfþrjú. Þyrlan hélt í kjölfarið til Ísafjarðar til að taka eldsneyti og flaug svo beint til Reykjavíkur. Þær upplýsingar fengust hjá Landhelgisgæslunni að líðan mannsins væri stöðug en honum var ekið rakleiðis á Landspítalann við komuna til Reykjavíkur þar sem hann gengst nú undir rannsókn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×