Sport

Bjarna sé beitt í leikmannamálum

Vestamannaeyingar gefa í skyn að formanni allsherjarnefndar Alþingis, Bjarna Benediktssyni, hafi verið beitt til að fá handknattleiksmenn til að yfirgefa ÍBV og ganga til liðs við Stjörnuna með loforði um ríkisborgararétt. Formaður handknattleiksdeildar ÍBV staðhæfir á heimasíðu félagsins að Tite Kalandaze hafi verið lofað ríkisborgararétti gengi hann til liðs við Stjörnuna, en hann og Roland Eradze hafa báðir skrifað undir samning við liðið. Látið hefur verið í ljós að Bjarni Benedikstsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður allsherjarnefndar, sé sá sem útvega eigi ríkisborgararéttinn. Bjarni segist ekki hafa neitt heyrt af málinu nema það sem hann hafi lesið á netmiðlum og heyri í fréttum. Það hafi ekki verið haft samband við hann í tengslum við leikmannaskipti og það komi honum mjög á óvart að þessi umræða sé í gangi. En kæmi aðstoð við slíkt til greina að hálfu Bjarna? Bjarni segir að umsóknir um ríkisborgararétt hafi sinn gang. Þær fari fyrst til dómsmálaráðuneytisins en fari svo fyrir þingið. Þar fjalli fulltrúar úr allsherjarnefnd um umsóknirnar og beri síðan sína niðurstöðu undir nefndina sem svo fari fyrir þingið. Ómögulegt sé að segja hvaða meðferð beiðni Kalandazes fengi á þessu stigi málsins. Aðspurður hvort að skipti máli í hvort menn séu í ÍBV eða Sjörnunni við meðferð umsókna um ríkisborgararétt segir Bjarni að að sjálfsögðu gerir það það ekki. Það hafi ekkert með málið að gera. Spuður hvað honum finnist um ásakanirnar segir Bjarni að hann vilji sem minnst um þær segja. Hann skilji ekki af hverju umræðan fari af stað með þessum hætti og best sé að spyrja þá sem hlut eigi að máli hvernig á þessu standi. Eyjamenn láta eins óánægju sína í ljós og segja að mönnunum hafi verið boðin laun sem ekki hafi verið hægt að keppa við og á bak við það hafi staðið faðir Bjarna, Benedikt Sveinsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×