Innlent

Meiddist illa í hlaupahjólsslysi

Þrettán ára strákur slasaðist alvarlega þegar hann féll á hlaupahjóli sínu í fyrradag á Hátúni í Keflavík. Drengurinn fékk stýrið í kviðinn með þeim afleiðingum að miltað sprakk. Samkvæmt fréttavef Víkurfrétta var hann fluttur á bráðamóttöku Landspítalans og var þaðan á gjörgæsludeild. Eftir aðhlynningu lækna var hann síðan fluttur á Barnaspítala Hringsins. Samkvæmt upplýsingum Víkurfrétta er líðan drengsins eftir atvikum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×