Tite lofaður ríkisborgararéttur 13. október 2005 19:12
Tite Kalandadze, fyrrverandi leikmanni ÍBV í handbolta var lofaður íslenskur ríkisborgararéttur af fulltrúum Stjörnunnar sem á miðvikudag náðu samkomulagi við leikmanninn um að leika með Garðabæjarliðinu næstu 2 árin. Svo segir Hlynur Sigmarsson, formaður handknattleiksdeildar ÍBV í yfirlýsingu sem birt var á heimasíðu félagsins í gær, fimmtudag. En ÍBV missti ekki aðeins einn besta sóknarmann nýliðins Íslandsmóts heldur einnig landsliðsmarkvörðinn Roland Eradze sem líka gekk í herbúðir Stjörnunnar. Roland og Tite fengu báðir mjög góðan samning. Tite fær 9 milljónir króna í árslaun en Roland 6 samkvæmt heimildum Vísis. Má því að leiðum líka að samanlagður kostnaður Stjörnunnar fyrir þessa tvo leikmenn út þetta 2 ára samningstímabil séu 30 milljónir króna. Hlynur kveðst vonsvikinn með að missa þessa sterku leikmenn og hann lætur gamminn geysa í yfirlýsingu sinni, enda ekki á hverjum degi sem heyrist af samningavopni eins og loforði um ríkisborgararétt. "Að auki var honum (Tite) tryggður íslenskur ríkisborgararéttur ef hann kæmi í Stjörnuna og sagði hann að sér hefði verið tjáð af þessum aðilum að það yrði mjög erfitt að fá íslenskan ríkisborgararétt væri hann um kyrrt í Eyjum og nefndi hann einstaklinga sem myndu tryggja honum ríkisborgararéttinn ef hann kæmi í Stjörnuna." sagði Hlynur m.a.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Í beinni: Real Madrid - Espanyol | Þurfa að halda í við sjóðheita Börsunga Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari 2024 Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju Eðla rölti inn á brautina á æfingu „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Dagskráin í dag: Íslendingaslagur af bestu gerð Sjá meira