Innlent

Ekið á ölvaðan umferðarstjóra

Uppátæki sem líklega hefur átt að vera brandari fékk heldur slæman endi á Laugaveginum í nótt. Að sögn lögreglunnar höfðu einhverjir spaugsamir vegfarendur tekið bíl sem var í stæði á Laugavegi og dregið hann út á götu þannig að hann truflaði umferð. Maður sem leið átti hjá og ekki var allsgáður sá að ófremdarástand var að skapast og ákvað upp á sitt einsdæmi að taka að sér umferðarstjórn. Ekki vildi þó betur til en að ekið var á hann við þessi löggæslustörf og var hann fluttur á slysadeild líklega með beinbrot. Spaugararnir sem áttu upptökin að þessu voru hins vegar á bak og burt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×