Innlent

22 ára í mánaðarfangelsi

22 ára gamall maður var í gær dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir líkamsárás 14. desember 2002. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur, en málið var dómtekið 20. apríl síðastliðinn. Lögreglustjórinn í Reykjavík gaf út ákæru í málinu í lok janúar. "Ákærði hefur ekki sætt refsingum svo kunnugt sé. Við ákvörðun refsingar verður litið til þess, en einnig horft til þess að ákærði sparkaði í höfuð liggjandi manns og gerði þannig alvarlega atlögu að líkama hans," segir í dómnum. Skaðabótakröfu þess sem ráðist var á var vísað frá dómi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×