Innlent

Barði mann með flösku

Liðlega tvítugur maður þarf bara að sitja inni í tvo mánuði af fimm fyrir líkamsárásir haldi hann skilorð í þrjú ár. Þá þarf hann, samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra, að greiða manni sem hann barði í höfuðuð með flösku tæpar 160 þúsund krónur. "Árás ákærða á brotaþola var tilefnislaus og ófyrirleitin. Brotaþoli skarst nokkuð í andliti og ber hann ör eftir," segir í dómnum, en með hliðsjón af aldri og skýlausri játningu þótti rétt að skilorðsbinda hluta dómsins. Frá 17 ára aldri hefur maðurinn verið sóttur til saka fyrir skjalafals, þjófnaði og umferðarlagabrot og rauf með broti nú skilorð frá því í júní 2003.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×