Innlent

Logandi jeppi hrökk í gang

Mannlaus jeppabifreið hrökk í gang eftir að eldur kom upp í vélarhúsi hennar nokkru fyrir klukkan tvö í gær og rauk aftur á bak á næsta bíl í bílastæði við Egilsgötu rétt við Snorrabraut í Reykjavík. Að sögn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins mun ekki fordæmalaust að bílar hrökkvi í gang við að upp kemur í þeim eldur, þótt fátítt sé. Mildi er talin að jeppinn, sem er af Land-Rover gerð, fór ekki lengra, enda þungur og gæti valdið miklu tjóni. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en eldsupptök eru ekki ljós.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×