Innlent

Óvenju gestkvæmt á Hverfisgötunni

Óvenju gestkvæmt var í fangageymslum lögreglunnar í Reykjavík í nótt, eða ellefu manns. Tveir þeirra sem þar dvelja nú voru teknir fyrir bílþjófnað og verða yfirheyrðir með morgninum og tveir, svokallaðir góðkunningjar, voru teknir þegar þeir komu sér inn í þvottahús í Norðurmýri þar sem þeir ætluðu að gista við lítinn fögnuð húseigenda. Þeir fengu hins vegar gistingu skammt frá, eða á lögreglustöðinni. Aðrir sem gistu þar í nótt voru teknir fyrir ölvun í miðborginni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×