Innlent

Braust inn og barði konu

Ríflega fertugur maður var í gær dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að brjótast síðastliðið sumar inn til fyrrverandi sambýliskonu sinnar og lemja hana í andlitið. Maðurinn var þegar á skilorði og varð það til að þyngja dóminn. Maðurinn játaði brot sitt refjalaust og sagðist iðrast gjörða sinna og því þótti unnt að skilorðsbinda dóminn til þriggja ára. Eins var manninum gert að greiða konunni miskabætur vegna áverka sem hún hlaut við árásina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×