Innlent

Skilorðsdómur fyrir ýmis brot

Nítján ára piltur var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnabrot, þjófnaði og eignarspjöll. Pilturinn braut skilorð með brotum sínum. Hann braust inn á heimili, inn í bíla og stal úr verslunum auk þess sem hann var tekinn í tvígang með fíkniefni í fórum sínum. Pilturinn segir brot sín hafa tengst fíkniefnavanda en hann hafi farið í meðferð síðan. Þar sem hann hefur verið án fíkniefna og stundað vinnu um nokkurt skeið þótti rétt að bregða ekki fæti fyrir hann í þeim bata sem hann hefur náð og var því ákveðið að skilorðsbinda refsinguna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×