Innlent

Dæmdur fyri húsbrot og árás

Rúmlega fertugur maður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir húsbrot og líkamsárás. Maðurinn fór í heimildarleysi inn um opna svalahurð á heimili fyrrverandi sambýliskonu sinnar og sló hana þannig að hún hlaut áverka í andliti. Með broti sínu braut maðurinn skilorð. Í dómnum segir að hann hafi játað hreinskilningslega og hafi látið iðrun í ljós. Þótti dómnum rétt að beita heimild til að fresta fullnustu refsingarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×