Innlent

Frávísun stendur í máli lækna

Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Félagsdóms frá 15. apríl þar sem máli Læknafélags Íslands á hendur íslenska ríkinu var vísað frá dómi. Læknafélagið, sem kærði úrskurðinn 20. apríl, þarf að greiða ríkinu 150 þúsund krónur í kærumálskostnað. Læknafélagið vildi fá viðurkennt fyrir Félagsdómi að læknar sem starfa við heilsugæslustöðvar og taka laun samkvæmt úrskurði kjaranefndar réðu sjálfir hvort þeir fengju greidd föst mánaðarlaun eða samsett laun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×