Innlent

Gæsluvarðhald staðfest

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald yfir manni sem gefin er að sök aðild á smygli á rúmum 7,5 kílóum af amfetamíni með Dettifossi frá Þýskalandi til Íslands síðasta sumar. Staðfestur úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur frá 4. maí síðastliðnum kveður á um gæsluvarðhald yfir manninum allt til miðvikudagsins 15. júní. Maðurinn neitar sök en Héraðsdómur tekur fram að þáttur hans í málinu sé talinn verulegur þar sem hann sé grunaður um að hafa staðið að skipulagningu, fjármögnun og kaupum á fíkniefnunum. Brot mannsins geta varðað allt að 12 ára fangelsi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×