Sport

Guðjón Valur Evrópumeistari

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Essen sem urðu í dag Evrópumeistarar félagsliða í handbolta með sigri á Magdeburg sem Alfreð Gíslason þjálfar, 31-22, í síðari úrslitaleik liðanna. Sigurinn var dramatískur í meira lagi því Essen vann upp 8 marka tap úr fyrri leiknum, 30-22 og sigruðu því samanlagt með eins marks mun. Sigfús Sigurðsson skoraði eitt mark fyrir Magdeburg í dag en það var rússneski leikmaðurinn Dimitri Torgovanov sem skoraði úrslitamark Essen á lokasekúndunni og skoraði Essen þrjú síðustu mörkin í leiknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×