Erlent

Sjö lögreglumenn féllu

Að minnsta kosti sjö lögreglumenn féllu í valinn og fimmtán særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í borginni Tíkrit í Írak í morgun. Árásarmaðurinn sprengdi sig í loft upp á námunda við rútu sem flytur lögreglumenn í og úr vinnu. Undanfarna tvo daga hafa meira en áttatíu manns fallið í valinn í Írak eftir sprengjuárásir uppreisnarmanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×