Sport

Hreiðar til KA?

Svo getur farið að landsliðsmarkvörðurinn Hreiðar Levy Guðmundsson gangi í raðir KA-manna en Akureyrarliðið hefur sett sig í samband við hann. Reynir Stefánsson, nýráðinn þjálfari KA, staðfesti þetta við Fréttablaðið í gær . "Við höfum rætt við Hreiðar en málið er ekkert komið lengra en það. Þetta ætti að skýrast á næstu dögum," sagði Reynir. Hreiðar sagði í samtali við Fréttablaðið að hann lægi undir feldi þessa dagana. "Ég er með tilboð frá KA og ÍR, en þetta ætti að skýrast á næstu dögum," sagði Hreiðar. Hann sagði enn fremur að ákvörðun sín myndi ekki byggjast á því hvort Ólafur Gíslason yfirgæfi ÍR. "Ákvörðun mín mun ekki ráðast af því, ég ætla að íhuga þetta vandlega áður en ég tek ákvörðun. Ég er að meta bæði kosti og galla þess að fara norður, þetta verður bara að koma í ljós," sagði landsliðsmarkvörðurinn Hreiðar Levy Guðmundsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×