Innlent

Tekinn á 180

Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í fyrrinótt ökumann á bifhjóli þar sem hann ók á 180 kílómetra hraða eftir Kringlumýrarbraut en þar er leyfilegur hámarkshraði 80 kílómetrar á klukkustund. Hann má búast við ökuleyfissviptingu og háum sektum. Lögreglan segir að með þessu athæfi hafi maðurinn stefnt sjálfum sér og samborgurum sínum í hættu þar sem hann hefði ekki getað brugðist við neinu óvæntu frá öðrum ökumönnum og því hafi þetta verið óðs manns æði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×