Innlent

Þjófur fúlsar við græjum

Brotist var inn í og kveikt í bifreið í Höfðahverfi í Reykjavík aðfaranótt föstudags. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík höfðu geislaspilari og hátalari verið losaðir úr bílnum, en síðan lagðir í aftursæti bílsins líkt og þjófurinn kærði sig ekki um góssið. Þjófurinn kveikti svo í rusli þannig að eldur komst í bílinn. Tilkynning um málið barst um klukkan eitt um nóttina og tókst slökkviliði að bjarga bílnum, sem þó þurfti að flytja á brott með krana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×