Innlent

Börðu mann við Gesthús

Héraðsdómur hefur sektað fimm menn um tvítugt um 75 þúsund krónur hvern fyrir að ráðast á og berja mann við Gesthús á Selfossi haustið 2003. Mennirnir eru frá Selfossi og Árborgarsvæðinu. Hjörtur Aðalsteinsson héraðsdómari kvað upp dóminn í Reykjavík, en hann kvað sektina hæfilega þar sem afleiðingar árásarinnar hefðu ekki verið alvarlegar. Þeir höfðu þó barið og sparkað ítrekað í manninn. Greiði ungu mennirnir ekki sektina bíður þeirra 16 daga fangelsi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×