Sport

Snorri í liði vikunnar

Handknattleiksmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson, leikmaður Grosswallstad, var valinn í lið vikunnar í þýsku úrvalsdeildinni af blaðinu Handwall Woche. Þetta er í annað skiptið sem Snorri Steinn er í liði vikunnar í vetur en hann hefur leikið mjög vel í síðari umferð þýsku úrvalsdeildarinnar. Hann hefur skorað 102 mörk í vetur. Níu mörk Loga Geirssonar fyrir Lemgo dugðu skammt gegn Essen því Lemgo tapaði, 33-30. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk fyrir Essen.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×