Innlent

Handtekinn á miðri flugbraut

MYND/Vísir
Lögreglan í Reykjavík handtók mann inni á miðri flugbraut á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi, enda var flugumferð enn í gangi og hefði flugvélum geta stafað hætta af manninum. Hann reyndist mjög ölvaður og vissi vart hvar hann var, hvað þá heldur hvert hann væri að fara. Þegar verið var að tæma vasa mannsins í fangageymslum lögreglunnar fannst stolið aðgangskort að vellinum sem saknað hefur verið af skrifstofum Flugmálastjórnar í nokkra daga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×