Innlent

Braut glas á dyraverði

Héraðsdómur Norðurlands eystra sýknaði í gær mann af ákæru um að hafa brotið bjórglas á höfði dyravarðar og rispað hann með því á hægri kinn. Dyravörðurinn krafðist rúmlega 360 þúsund króna í bætur. Maðurinn kvað um óviljaverk hafa verið að ræða, allt hafi gerst hratt og honum brugðið þegar dyravörður greip í hönd honum. Vísa átti honum út af staðnum fyrir að sulla úr glasi sínu yfir konu og ónáða gesti skemmtistaðarins Vélsmiðjunnar á Akureyri. Bótakröfu dyravarðarins var vísað frá dómi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×