Innlent

Þrír fluttir á slysadeild

Þrír voru lagðir inn á sjúkrahús til skoðunar og frekara eftirlits eftir árekstur fólksbíls og strætisvagns við Listabraut í Reykjavík í gærmorgun. Fólkið var allt í fólksbílnum, en að sögn vakthafandi læknis á slysadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss ekki talið mjög slasað, en lemstrað, bæði með skurði og sár. Í strætisvagninum sluppu ökumaður og tveir farþegar hans lítið meiddir. Ökumaðurinn og annar farþeginn leituðu til slysadeildar en voru sendir heim að lokinni skoðun. Talið er að fólksbílnum hafi verið ekið í veg fyrir strætisvagninn sem var að koma frá Kringlumýrarbraut. Bíllinn er mikið skemmdur eftir áreksturinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×