Innlent

Líðan stúlkna eftir atvikum góð

Líðan þriggja stúlkna sem fluttar voru á sjúkrahús eftir árekstur fólksbíls sem þær voru í við strætisvagn við Verslunarskólann í morgun er eftir atvikum góð. Svo virðist sem bílnum hafi verið ekið út af bílastæði Verslunarskólans og í veg fyrir vagninn. Þrír farþegar í strætisvagninum slösuðust lítillega en klippa þurfti stúlkurnar þrjár úr bifreiðinni. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eru áverkar þeirra ekki taldir lífshættulegir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×