Innlent

Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur

MYND/E.Ól
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem réðst á lækni fyrir utan heimili hans á föstudagskvöld. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði úrskurðað manninn í gæsluvarðhald til 20. maí og að hann skyldi gangast undir geðrannsókn. Sá úrskurður var kærður til Hæstaréttar og hélt verjandi mannsins því fram að skjólstæðingi sínum væri mismunað gagnvar svokölluðum handrukkurum sem orðið hafi uppvísir af ítrekuðum og hrottalegum ofbeldisbrotum. Hæstiréttur taldi þau rök ekki halda. Maðurinn hefur ítrekað hótað lækninum ofbeldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×