Innlent

Umferðarslys við Verslunarskólann

Sex manns slösuðust í árekstri strætisvagns og fólksbíls á gatnamótum við Verslunarskólann um klukkan hálfellefu í morgun. Þrír voru í fólksbílnum og slösuðust þeir töluvert en farþegar strætisvagnsins slösuðust lítillega. Svo virðist sem fólksbílnum hafi verið ekið út af lóð Verslunarskólans í veg fyrir strætisvagninn með þeim afleiðingum að strætisvagninn lenti á hlið bílsins. Þeir sem voru í fólksbílnum eru allir nemendur Verslunarskóla Íslands. Tækjabíll slökkviliðsins var sendur á vettvang auk fimm sjúkrabíla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×