Innlent

Lithái dæmdur í farbann

Hæstiréttur dæmdi í dag Litháa í farbann til 18. maí. Maðurinn kom hingað til lands með Norrænu í byrjun mars en hann er eftirlýstur af þýsku lögreglunni og talinn tengjast skipulagðri glæpastarfsemi í Þýskalandi og Litháen. Í lok mars barst framsalsbeiðni frá þýskum dómsmálayfirvöldum en maðurinn er sakaður um að hafa flutt fíkniefni og falsaða peninga til Þýskalands auk innbrota og þjófnaða. Dómsmálaráðuneytið hefur nú framsalsbeiðnina til meðferðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×