Innlent

Hirtu hangikjötshníf af manni

Lögreglan á Ísafirði hafði afskipti af manni á skemmtistað í bænum að kvöldi síðasta vetrardags þar sem hann var með hníf inn á staðnum. Í ljós kom að maðurinn var með hangikjötslæri með sér og hugðist hann gefa gestum sneiðar af lærinu og nota hnífinn til þess. Hnífurinn var tekinn af manninum en hann fékk að halda lærinu. Ekki fylgir sögunni hvort hann hafi boðið gestum bita af lærinu eftir það.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×