Innlent

Þeyttist út af Suðurlandsvegi

Til allrar hamingju rásaði bíll út af Suðurlandsveginum en ekki inn á öfugan vegarhelming á móti bílum þegar ökumaðurinn, sem var í mikilli fíkniefnavímu, missti stjórn á honum í Lögbergsbrekku í gær. Bíllinn þeyttist 70 metra út af veginum. Lögreglumenn frá Selfossi komu fyrstir á vettvang og handtóku ökumann og farþega þegar ljóst var að þeir voru báðir út úr skakkir af vímuefnum og afhentu þá Kópavogslögreglunni sem hefur lögsögu á svæðinu. Við leit á mönnunum og við húsleit heima hjá þeim fundust um það bil 200 e-töflur, 50 grömm af amfetamíni, eitthvað af marijúana og kona sem einngi var handtekin. Við yfirheyrslur í nótt játaði annar mannanna að hafa átt fíkniefnin og að hafa ætlað bæði að selja þau og nýta hluta þeirra sjálfur. Fólkinu var sleppt undir morgun að yfirheryslum loknum en rannsókn málsins heldur áfram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×