Innlent

Réðust með kylfum á varnarliðsmenn

MYND/E.Ól.
Hópur Íslendinga réðst með kylfum að tveimur varnarliðsmönnum í Keflavík í fyrrinótt. Varnarliðsmennirnir voru staddir á Hafnargötu um fjögurleytið um nóttina og flúðu undan árásarmönnunum inn á skemmtistaðinn Traffic. Annar þeirra hlaut töluverða áverka í andliti og var bólginn eftir, auk þess sem tönn hafði brotnað. Lögreglan yfirheyrði þrjá pilta, sextán og sautján ára gamla, úr Reykjanesbæ sem eru grunaðir um árásina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×