Innlent

Teknir á 157 og 148 km hraða

Tveir voru teknir fyrir ofsaakstur í umdæmi lögreglunnar á Egilsstöðum í nótt. Báðir voru teknir skammt frá Egilsstöðum. Annar ók á 157 kílómetra hraða en hinn á 148 kílómetra hraða. Ökumennirnir mega búast við því að verða sviptir ökuréttindum. Fleiri óku of hratt og voru um tíu karlmenn teknir á 120 til 130 kílómetra hraða. Dansleikur sem haldinn var í bænum fór vel fram en tveir voru teknir fyrir ölvun við akstur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×