Erlent

Sprengingar við lögregluskóla

Að minnsta kosti sjö létust og tugir særðust í tveimur sjálfsmorðsprengingum sem gerðar voru í námunda við lögregluskóla í bænum Tíkrit í Írak í morgun. Fyrri sprengjan sprakk þegar árásarmaðurinn ók bifreið að byggingunni og sprengjan sprakk innan um fjölda lögreglumanna. Fjöldi manns þusti að til að aðstoða særða þegar önnur bifreið kom aðvífandi og önnur sprengja reið af. Árásirnar í Tíkrit koma í kjölfar hrinu ofbeldisverka sem enn færast í aukana. Í gær létust þrettán Írakar og 39 særðust í árásum sem gerðar voru í og við höfuðborg landsins, Bagdad.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×