Innlent

Ölvaður bílþjófur á Reykjanesbraut

Drukkinn bílþjófur, sem stal bifreið í Keflavík í nótt, náðist skömmu síðar á Reykjanesbrautinni eftir að hafa rásað þar á milli vegarhelminga. Lögreglu barst tilkynning um bílstuldinn um fjögurleytið í nótt en eigandinn hafði brugðið sér frá og skilið bílinn eftir í gangi. Lögreglumenn hófu þegar leit en nokkrum mínútum síðar sást til bílsins á leið austur Reykjanesbraut, skammt frá Grindavíkurvegi. Bíllinn rásaði nokkuð til en samkvæmt upplýsingum Keflavíkurlögreglunnar var til allrar hamingju lítil umferð og enginn bíll kom úr gagnstæðri átt. Var bifreiðin stöðvuð og ökumaður handtekinn. Bíða hans nú sakamál fyrir bílþjófnað og ölvunarakstur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×