Innlent

Líklega íkveikja við Mýrargötu

Eldur kviknaði í húsi við Mýrargötu á hafnarsvæði Reykjavíkur seint í gærkvöldi. Talið er líklegt að kveikt hafi verið í húsinu. Þokkalega gekk að slökkva eldinn að sögn varðstjóra slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins en allar stöðvar voru kallaðar út. Töluverður tími fór í að leita að fólki í húsinu sem reyndist svo vera mannlaust. Húsið hefur lengi staðið autt en borið hefur á því að fólk sem ekki á í önnur hús að venda hafi leitað sér skjóls þar. Loka þurfti fyrir umferð um Mýrargötu í um tvær klukkustundir vegna brunans. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem eldur kemur upp í húsinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×