Innlent

Barni bjargað af botni vatns

Um miðjan dag í gær var barni bjargað úr Þingvallavatni. Foreldrarnir litu af þriggja ára gömlu barni sínu andartak og rölti það að árbakkanum. Við leit fannst barnið á botninum. Foreldrarnir beittu lífgunartilraunum sem báru árangur og hringdu í Neyðarlínuna 112 sem sendi sjúkrabíl á vettvang. Foreldrarnir keyrðu á móti og var barnið flutt á Landspítala - háskólasjúkrahús. Vakthafandi læknir segir líðan barnsins góða. Það fái að fara heim í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×