Innlent

Kannabisefni finnast við húsleit

Fernt var handtekið í gærkvöldi eftir að húsleit var gerð í sumarbústað í uppsveitum Árnessýslu. Lögreglan á Selfossi hafði fengið húsleitarheimild og fannst nokkurt magn af kannabisefnum í leitinni. Ein kona og þrír menn um tvítugt gistu fangageymslurnar og bíða þess nú að verða yfirheyrð. Þau eru ekki þekkt hjá lögreglunni fyrir brot af þessu tagi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×