Innlent

Bílvelta í höfuðborginni

Maður í annarlegu ástandi missti stjórn á bíl sínum og velti á Reykjanesbraut á móts við Breiðholtsbraut í nótt. Hann slapp með minniháttar meiðsl en stórskemmdi bílinn. Hann var færður á lögreglustöðina þar sem tekin var af honum skýrsla auk þess sem tekin voru blóðsýni. Þá voru sex aðrir teknir grunaðir um ölvun við akstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík í nótt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×